Nú í febrúar og mars var ýmis búnaður settur í skipið frá Marás: Alsjálfvirk bindivél af gerðinni Cyklop AQ-7M. Vélin er af vönduðustu gerð, búin nemum og færiböndum sem sjá um að keyra umbúðir í gegn um vélina og binda. Brúarstóll af gerðinni NorSap 1000 Comfort með öllu tilheyrandi. Dælubúnaður fyrir Mergi brennsluhvata sem sér um að blanda efnið í réttu hlutfalli inn á áfyllingarör við olíuáfyllingu. Einnig fóru um borð 3 tunnur af Mergi. Europa Filter olíuhreinsibúnaður sem tengdur var við smurolíukerfi nýjustu ljósavél skipsins sem einnig var seld af Marás fyrir um 2 árum síðan. Ýmsir varahlutir, svo sem olíudæla, dæluelement og fleira fyrir aðalvél skipsins ásamt nýjum túrbínulegum. Nýja bindivélin komin á sinn stað

Bindivélin í prófun

Brúarstóllinn á sínum stað 
Magnús 3. kennir áhafnarmeðlimum réttu handtökin

Mergi dælan á sínum stað í vélarúminu 
Eiríkur vélstjóri og Magnús 3. yfirfara kerfið


Færðu inn athugasemd